|
Fjarhjálp
Aukin þjónusta
tengt símaþjónustu - minni kostnaður
Fjarhjálp er mjög öflugur kostur og spennandi kostur
fyrir viðskiptavini sem þurfa símaaðstoð fyrir flókin atriði sem erfitt
er að lýsa fyrir þjónustumanni. Sum mál er erfitt að leysa í
símaþjónustu, taka langan tíma og verða á endanum kostnaðarsöm.
Til að leysa úr þessu býður Tölvumiðlun Fjarhjálp þar sem
þjónustumaðurinn tengist tölvu viðskiptavinarins á mjög stuttum tíma og
hefur þjónustu.
Kostir
Fjarhjálpar
-
Viðskiptavinurinn stofnar tenginguna og þarf að
samþykkja hana.
-
Öll samskipti eru dulkóðuð og fyllsta öryggis gætt.
-
Ráðgjafar og þjónustumenn geta ekki tengst án
samþykkis viðskiptavinar.
-
Tekur mjög stuttan tíma að koma tengingunni á.
-
Ekki er þörf á kerfisstjóraréttindum til að koma
tengingu á.
-
Ekki þörf á aðstoð tæknimanna við að koma tengingu
á.
Kostnaður
Lágmarkskostnaður vegna fjartenginga er
eingöngu 0,25 tími og í mörgum tilfellum er hægt að leysa málin á þeim
tíma. Mjög víða er þessi kostnaður 1 tími en Tölvumiðlun leggur
metnað sinn í að gera þessa þjónustu eins hagkvæma fyrir alla aðila og
kostur er.
|