Fjartengingar

 

Aukin þjónusta - minni kostnaður

Fjartengingar er spennandi kostur sem Tölvumiðlun bíður viðskiptavinum sínum til að bæta þjónustuna og lækka kostnað.

 

Með fjartengingu getur þjónustumaður Tölvumiðlunar tekið yfir tölvu viðskiptavinar frá sinni vinnustöð og unnið á henni eins og hann væri með hana fyrir framan sig.  Þannig er hægt að gera lagfæringar, setja inn uppfærslur og sinna annarri almennri þjónustu við viðskiptavini án þess að koma á staðinn með tilheyrandi kostnaði.

 

Þetta er sérstaklega spennandi kostur fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni, þar sem oft getur verið dýrt að fá þjónustumann til sín vegna ferðakostnaðar.  Fjartengingar eru þó ekki síður fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu þar sem oft geta komið upp vandamál sem þurfa úrlausnar á stuttum tíma.

 

Öryggismál

Tölvumiðlun leggur mikla áherslu á að öryggismál séu í lagi.  Þegar viðskiptavinur biður um að þjónustumaður tengist tölvu hans fer af stað ferli sem tryggja á öryggi viðskiptavinarins.  Meðan á tengingu stendur eiga samskiptin sér stað með þeim hætti að ekki er mögulegt fyrir utanaðkomandi aðila að fylgjast með þeim.  Þannig vill Tölvumiðlun gera sitt til að tryggja að viðkvæmar upplýsingar komist ekki í rangar hendur.

 

Tengingar

Tvær aðferðir eru í boði til að tengjast:

1. Mögulegt er að tengjast tölvu viðskiptavinar beint í gegnum Bomgar. Þá þarft tölva viðskiptavinarins að vera með tengingu við Internet. 

2. Þjónustumaður tengist inn á net viðskiptavinar í gegnum VPN eða álíka búnað. 

 

Í dag er nær eingöngu notast við tengingar í gegnum internetið og VPN enda langflest fyrirtæki með slíkar tengingar.

 

Ofangreindar aðferðir hafa sína kosti og galla og hvetjum við viðskiptavini okkar að hafa samband við þjónustudeildina til að fá frekari upplýsingar.

 

Kostnaður

Lágmarkskostnaður vegna fjartenginga er 0,5 tími á útseldum taxta þess starfsmanns sem vinnur vinnuna.

 

Nánari upplýsingar:

- Bomgar framleiðandi Bomgar