Þjónusta við kerfi Tölvumiðlunar

 

Markmið Tölvumiðlunar um þjónustu eru skýr.  Við setjum okkur það takmark að veita úrvalsþjónustu eftir fremsta megni.  Þjónustunni má skipta í þrennt, símaþjónustu, fjartengingu við tölvukerfi viðskiptavina og heimsóknir til viðskiptavina.

 

Símaþjónusta

Notendur geta hringt inn og fengið svör við vandamálum eða fyrirspurnum.  Að lágmarki er alltaf einn þjónustumaður inni sem sinnir slíkri þjónustu.  Ef þjónustumaðurinn er upptekinn í símtali þá er tekin niður þjónustubeiðni.   Þegar þjónustumaðurinn er laus, hringir hann í viðkomandi viðskiptavin og reynir eftir fremsta megni að leiðbeina notandanum með það vandamál sem hringt var vegna.  Um mánaðamót þegar allir notendur eru að vinna í launakerfinu getur skapast álag.  Þá sitja fleiri þjónustumenn við símann og svara fyrirspurnum.  Hægt er í flestum tilfellum að hjálpa notendum með þjónustusímtali eða fjartengingu. Sé það ekki mögulegt er stofnuð verkbeiðni og þjónustumaður sendur á staðinn.

Um áramót skapast oft mikið álag.  Janúarmánuður er venjulega fimmfaldur í símaþjónustunni og þá getur því miður tekið tíma að ná í þjónustudeildina.

 

Heimsóknir til viðskiptavina

Þjónustumenn taka niður verkbeiðnir.  Þær eru settar í sameiginlegan pott og úthlutað til þjónustumanna af deildarstjórum, ef viðkomandi þjónustumaður getur ekki sinnt beiðninni.  Reynt er eftir fremsta megni að sinna verkbeiðnum í þeirri röð sem þær berast okkur.  Sumar verkbeiðnir eru þó brýnni en aðrar og reynt er að skilgreina vandamálið og úthluta verkefninu til þess þjónustumanns, sem getur lokið verkinu á sem skemmstum tíma. Heimsóknir til viðskiptavina verða viðskiptavinir að greiða í tímavinnu ásamt þeim ferðakostnaði sem kann að hljótast af ferðum þjónustumanna.

 

Tenging við tölvukerfi

Í æ ríkari mæli er þjónusta við notendur framkvæmd með tengingum í gegnum internetið.  Þetta sparar viðskiptavininum ferðakostnað og er það til mikillar hagræðingar fyrir viðskiptavini úti á landi.  Til þess að hægt sé að fá slíka þjónustu er ráðlegt að hafa samband við þjónustudeildina og ráðfæra sig með hvaða hætti heppilegast er að tengjast tölvukerfinu. Þessa þjónustu þarf að greiða fyrir í tímavinnu.  Til frekari upplýsingar vísum við á síðu um fjartengingar.